Haldið verður tveggja daga námskeið í Jákvæðum aga dagana 13.-14. janúar 2022 á Hótel Skúlagarði í Kelduhverfi. Leiðbeinendur verða Aníta Jónsdóttir og Ágúst Jakobsson. Leiðbeinendur hafa hlotið vottun sem slíkir (Certified Positive Discipline Trainer).
Þarna er um að ræða nokkuð stíft tveggja daga námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og öryggi í notkun Jákvæðs aga í sínum störfum. Námskeiðið er viðurkennt af Positive Discipline Association í Bandaríkjunum og munu þátttakendur fá viðurkenningu að því loknu. Rétt er að taka fram að þar sem þetta er svokallað „grunnnámskeið“ (Core workshop) gætu þeir sem hafa áður setið námskeið eða fengið fræðslu í Jákvæðum aga upplifað einhverjar endurtekningar á þessu námskeiði, en á hinn bóginn er alltaf gagnlegt að fara aftur í gegnum grunnæfingar og taka þátt í umræðum um grunnþætti í stefnunni, auk þess sem námskeiðið er formlega viðurkennt og gefur því tækifæri til framhaldsnáms fyrir þá sem vilja.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Skúlagarði í Kelduhverfi og stendur frá kl. 9-17 fimmtudaginn 13. janúar og föstudaginn 14. janúar 2022.
Kostnaður er sem hér segir:
Gisting og fæði (tveir í herbergi): 28.800
Gisting og fæði (einn í herbergi): 31.800
(Innifalið: Gisting með morgunverði frá miðvikudagskvöldi til föstudags, hádegisverðir, kaffi og meðlæti og þriggja rétta kvöldverður á fimmtudagskvöldinu)
Námskeiðsgjald (leiðbeinendur, fundaraðstaða, námskeiðsgögn, gjald til Positive Discipline Association, viðurkenningarskjöl o.fl.): kr. 52.000
Samtals miðað við tvo í herbergi: 80.800
Samtals miðað við einn í herbergi: 83.800
Samtals námskeið og fæði án gistingar: 65.850
Kostnaðurinn er styrkhæfur frá Vonarsjóði vegna grunnskólans og Vísindasjóði vegna leikskólans. Gert er ráð fyrir að gisting og fæði sé greitt á staðnum en reikningar fyrir námskeiðsgjaldinu verði sendir þátttakendum þegar skráningu er lokið. Það væri sannarlega bæði gaman og gagnlegt ef þarna gæti ca 20-25 manna hópur hist, fræðst í sameiningu og bæst við hóp lykilaðila í innleiðingu Jákvæðs aga hér á landi.
Skráning fer fram hér: