Haldið verður tveggja daga námskeið í Jákvæðum aga dagana 12.-13. sept næstkomandi á Akureyri.  Leiðbeinandi er Jónína Hauksdóttir (Certified Positive Discipline Trainer).

Þarna er um að ræða nokkuð stíft tveggja daga námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og öryggi í notkun Jákvæðs aga í sínum störfum. Námskeiðið er viðurkennt af Positive Discipline Association í Bandaríkjunum og munu þátttakendur fá viðurkenningu að því loknu.  Rétt er að taka fram að þar sem þetta er svokallað „grunnnámskeið“ (Core workshop) gætu þeir sem hafa áður setið námskeið eða fengið fræðslu í Jákvæðum aga upplifað einhverjar endurtekningar á þessu námskeiði, en á hinn bóginn er alltaf gagnlegt að fara aftur í gegnum grunnæfingar og taka þátt í umræðum um grunnþætti í stefnunni, auk þess sem námskeiðið er formlega viðurkennt og gefur því tækifæri til framhaldsnáms fyrir þá sem vilja.

Á þessu námskeiði er megináherslan lögð á Jákvæðan aga í starfi með ungum börnum og það nýtist því best leikskólakennurum, stjórnendum í leikskólum, dagmæðrum eða öðrum sem vinna með börn frá fæðingu til sex ára aldurs. Engu að síður getur það einnig nýst starfsfólki á öðrum skólastigum sem og foreldrum. Að loknu námskeiðinu öðlast þátttakendur viðurkenningu til að nýta jákvæðan aga í skólastarfi með yngstu börnunum (Certified Positive Discipline Early Childhood Educator).

Námskeiðið verður haldið í Skipagötu 4 á Akureyri kl. 8:15-16:15 fimmtudaginn 12. september og föstudaginn 13. september 2024. 

Námskeiðsgjald (leiðbeinandi, fundaraðstaða, námskeiðsgögn, gjald til Positive Discipline Association, viðurkenningarskjöl o.fl.): kr. 65.000.-

Kostnaðurinn er styrkhæfur frá Vonarsjóði vegna grunnskólans og Vísindasjóði vegna leikskólans. 

Skráning fer fram hér:

https://forms.gle/qSknrhAMuugMKQLH8

Einblöðung um námskeiðið má nálgast hér:

http://jakvaeduragi.is/wp-content/uploads/2024/04/Akureyri-rettindanamskeid-haust-24.pdf