Nú eru tvö námskeið fyrir leikskólastarfsfólk komin á dagskrá, annað á Seltjarnarnesi dagana 29.-30. maí nk. og hitt á Akureyri dagana 12.-13. september. Tveggja daga réttindanámskeið um Jákvæðan aga í leikskólanum eða með yngstu börnunum eru ætluð stjórnendum, leikskólakennurum, leiðbeinendum, dagmæðrum eða öðrum sem vinna með börn frá fæðingu til sex ára aldurs. (Þetta námskeið getur einnig hentað foreldrum þó að áherslan sé aðallega á starf með barnahópum.) Þátttakendur læra að hagnýta sér verkfæri Jákvæðs aga og hugmyndafræði sjálfsstjórnarkenninga í starfi með yngstu börnunum. Þeir öðlast einnig dýpri skilning á því hvernig börn læra, mikilvægi þess að tilheyra og hvernig hægt er að kenna og þjálfa félagsfærni með ungum börnum.
Viðburðir á næstunni
_____________________________________
Við minnum á að enn eru laus sæti á tveggja daga námskeið um Jákvæðan aga í ágúst og september.
Jákvæður agi í skólastofunni 12.-13. ágúst á Selfossi.
Jákvæður agi í leikskólanum 12.-13. september á Akureyri.
Er ekki um að gera að byrja nýtt skólaár með því að bæta við þekkingu og hæfni í Jákvæðum aga?
Sjá nánar hér: jakvaeduragi.is/namskeid-og-fraedsla/namskeid-framundan/
... Sjá meiraSjá minna
- Likes: 18
- Shares: 4
- Comments: 0
0 CommentsComment on Facebook
Dagana 29. og 30. maí sl. var réttindanámskeiðið Jákvæður agi fyrir kennara ungra barna haldið á Seltjarnarnesi. Þátttakendur voru 24 og komu frá Bolungarvík, Reykjavík og Seltjarnarnesi. Leiðbeinandi var Jónína Hauksdóttir. ... Sjá meiraSjá minna
![Dagana 29. og 30. maí sl. var réttindanámskeiðið Jákvæður agi fyrir kennara ungra barna haldið á Seltjarnarnesi. Þátttakendur voru 24 og komu frá Bolungarvík, Reykjavík og Seltjarnarnesi. Leiðbeinandi var Jónína Hauksdóttir.](https://scontent.frkv1-2.fna.fbcdn.net/v/t39.30808-6/447660413_1007393798053397_991367908972591582_n.jpg?stp=dst-jpg_p720x720&_nc_cat=104&ccb=1-7&_nc_sid=833d8c&_nc_ohc=ZeTMVR2Tfr4Q7kNvgFEMH43&_nc_ht=scontent.frkv1-2.fna&edm=AKK4YLsEAAAA&gid=Ab1b4wmfekYKowKYu74h5VO&oh=00_AYD10TyIwYlOvoPh9fmXVu1c0U4LRW6-_R3DR_F7EjOU-Q&oe=66AA56D7)
0 CommentsComment on Facebook
Örstutt fréttabréf frá Jákvæðum aga á Íslandi ... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook