Komið er út verkefnasafn um Jákvæðan aga á vinnustaðnum (Positive Discipline in the Workplace). Það má nýta til að leggja grunn að betra andrúmslofti og auknum gagnkvæmum skilningi á vinnustaðnum og getur verið um að ræða stutta fræðslufundi eða allt upp í þriggja daga námskeið.
Fjallað er um eftirfarandi:
- Hvernig kenningar Alfred Adler eiga við um vinnustaði vegna m.a. áherslunnar á að tilheyra, gagnkvæma virðingu o.fl.
- Hvernig við getum lært um okkur sjálf t.d. með aðstoð æfingarinnar um „Trompið“ (Top Card) þar sem áherslan er á að kynnast styrkleikum sínum, og hvernig við getum nýtt okkur fleiri verkfæri Jákvæðs aga í vinnuumhverfinu.
- Hvernig við höfum myndað okkur gildi og viðhorf í gegnum tíðina og hvernig þau hafa áhrif á okkur dags daglega.
- Hvernig við getum verið hvetjandi fyrir okkur sjálf og hvert við annað, gerðar eru æfingar til að skilja það og æfa.
- Hvernig við getum nýtt okkur ákveðin form fyrir áhrifaríka fundi og lausnaleit.
- Hvernig við getum bætt samskipti okkar á vinnustaðnum þannig að hann einkennist af virðingu, öryggi og góðum afköstum.