Námskeið fyrir starfsfólk skóla sem vill halda foreldranámskeið verður haldið dagana 23. janúar (fjarfundur kl. 15-17),
26. janúar (í Reykjavík kl. 8-16) og 31. janúar (fjarfundur kl. 15-17).

Leiðbeinendur eru Ágúst Jakobsson og Aníta Jónsdóttir (Certified Positive Discipline Trainer).Þarna er um að ræða  námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og verði að námskeiði loknu tilbúnir til að halda kynningar og/eða lengri námskeið fyrir foreldra. Þátttakendur munu einnig fá ýmis gögn sem hægt verður að nýta á kynningum og námskeiðum.
Námskeiðið er viðurkennt af Positive Discipline Association í Bandaríkjunum og munu þátttakendur fá viðurkenningu að því loknu.  Rétt er að taka fram að þar sem þetta er svokallað „grunnnámskeið“ (Core workshop) gætu þeir sem hafa áður setið námskeið eða fengið fræðslu í Jákvæðum aga upplifað einhverjar endurtekningar á þessu námskeiði, en á hinn bóginn er alltaf gagnlegt að fara aftur í gegnum grunnæfingar og taka þátt í umræðum um grunnþætti í stefnunni. Auk þess er námskeiðið formlega viðurkennt og gefur því tækifæri til framhaldsnáms fyrir þá sem vilja.

Hér má fá nánari upplýsingar um þetta námskeið hjá PDA samtökunum

https://positivediscipline.org/parent-educator-training

Námskeiðsgjald er 65.000 kr.
(Innifalið: Námskeiðsgögn, tvær bækur (Teaching Parenting og Positive discipline), gögn til nota á námskeiðum með foreldum, kaffi og létt hressing, gjald til Positive Discipline Association, viðurkenningarskjöl o.fl.)

Kostnaðurinn er styrkhæfur frá Vonarsjóði vegna grunnskólans og Vísindasjóði vegna leikskólans.   

Skráning fer fram hér:

https://forms.gle/K6fD2jNGK23ipSmC7