1.gr.
Félagið heitir Jákvæður agi á Íslandi
2. gr.
Tilgangur félagsins er að vera vettvangur áhugafólks um uppeldisstefnuna Jákvæðan aga (e. Positive Discipline) og styðja við þá einstaklinga og stofnanir sem tileinka sér aðferðir og gildi Jákvæðs aga. Félagið hefur tengsl við samtök um Jákvæðan aga í Bandaríkjunum (Positive Discipline Association).
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda úti heimasíðu um Jákvæðan aga, með því að efna til fræðslufunda, ráðstefna og námskeiða um Jákvæðan aga og með því að stuðla að þýðingu og útgáfu/dreifingu efnis sem snertir Jákvæðan aga.
4. gr.
Félagsaðild. Allt áhugafólk um Jákvæðan aga hefur rétt á að gerast félagar.
5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega greiða atkvæði á aðalfundi.
6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál
7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 8 félagsmönnum, formanni, ritara, gjaldkera og 5 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Að minnsta kosti einn stjórnarmaður á hverjum tíma skal hafa lokið leiðtoganámskeiði á vegum samtakanna (CPDT). Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega.
9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til að styðja við starfsemi eða útbreiðslu Jákvæðs aga, s.s. með kynningum, útgáfu fræðsluefnis o.fl.
10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess þá til góðgerðar- eða líknarmála sem aðalfundur ákveður.
Lögum síðast breytt á aðalfundi samtakanna 15. maí 2024