Haldið verður tveggja daga námskeið í Jákvæðum aga (Positive Discipline in the Classroom) dagana 28.-29. október 2022.  Námskeiðið verður haldið á Vopnafirði kl. 12:00-18:00 föstudaginn 28. október og Þórshöfn kl. 9:00-17:00 laugardaginn 29. október.Leiðbeinandi er Aníta Jónsdóttir (Certified Positive Discipline Trainer).

Þarna er um að ræða nokkuð stíft tveggja daga námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og öryggi í notkun Jákvæðs aga í sínum störfum. Námskeiðið er viðurkennt af Positive Discipline Association í Bandaríkjunum og munu þátttakendur fá viðurkenningu að því loknu.  Rétt er að taka fram að þar sem þetta er svokallað „grunnnámskeið“ (Core workshop) gætu þeir sem hafa áður setið námskeið eða fengið fræðslu í Jákvæðum aga upplifað einhverjar endurtekningar á þessu námskeiði, en á hinn bóginn er alltaf gagnlegt að fara aftur í gegnum grunnæfingar og taka þátt í umræðum um grunnþætti í stefnunni, auk þess sem námskeiðið er formlega viðurkennt og gefur því tækifæri til framhaldsnáms fyrir þá sem vilja. Sjá nánar um tveggja daga námskeið hér

Námskeiðsgjald er 52.000 kr.
(Innifalið: Námskeiðsgögn, kaffi og létt hressing, gjald til Positive Discipline Association, viðurkenningarskjöl o.fl.)

Kostnaðurinn er styrkhæfur frá Vonarsjóði vegna grunnskólans og Vísindasjóði vegna leikskólans.   

Skráning fer fram hér:

https://forms.gle/Zx9FevwxzC7Nnrg37