Stærsti viðburður hvers árs í starfi Positive Discipline Association eru hinar árlegu ráðstefnur sem yfirleitt eru haldnar í júlímánuði og kallaðar eru „Think Tank“. Þar mæta leiðbeinendur og áhugafólk um Jákvæðan aga víðs vegar að úr heiminum og verja einni helgi við að afla sér nýrrar þekkingar og miðla af reynslu sinni. Í ár er viðburðurinn í San Diego dagana 28.-30. júlí nk. Félagsmenn í Jákvæðum aga á Íslandi hafa þátttökurétt á viðburðinum og er um að gera að kynna sér málið. Nánari upplýsingar eru á síðu samtakanna www.positivediscipline.org
Viðburðir á næstunni
Jákvæður agi í leikskólanum - 19.-20. jan 2026
Foreldrafræðslunámskeið febrúar 2026
Jákvæður agi í skólastofunni - 23.-24. apríl 2026
___________________________________
Dagana 19. og 20. janúar var haldið réttindanámskeið fyrir kennara ungra barna í Reykjavík.
Þátttakendur voru 13 og komu frá Furugrund í Kópavogi, Leikskólanum Laugalandi og Laugalandsskóla nálægt Hellu, Ásgarði á Hvammstanga, Geislabaug í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Krikaskóla í Mosfellsbæ.
Leiðbeinandi var Jónína Hauksdóttir.
... Sjá meiraSjá minna

- likes love 24
- Shares: 1
- Comments: 0
0 CommentsComment on Facebook
Enn eru næg laus pláss á næsta réttindanámskeið í Jákvæðum aga fyrir kennara ungra barna. Námskeiðið verður haldið dagana 19. og 20. janúar 2026 í Reykjavík og fer skráning fram á vefsíðu Samtaka um Jákvæðan aga eða með því að opna tengilinn hér fyrir neðan.
Vert er að taka fram að þetta verður eina námskeiðið á árinu 2026 sem haldið verður á höfðuðborgarsvæðinu fyrir kennara ungra barna.
forms.gle/1gXhXtBBvsZcxALa9
... Sjá meiraSjá minna

0 CommentsComment on Facebook
Nýtt réttindanámskeið í Jákvæðum aga fyrir kennara ungra barna hefur verið sett á laggirnar. Námskeiðið verður haldið dagana 19. og 20. janúar 2026 í Reykjavík og fer skráning fram á vefsíðu Samtaka um Jákvæðan aga.
jakvaeduragi.is/namskeid-i-reykjavik-ja-i-leikskolanum/
... Sjá meiraSjá minna

0 CommentsComment on Facebook