Í vetur er hugmyndin að hafa mánaðarlega fræðslu- og umræðufundi þar sem félagsmenn geta hist með rafrænum hætti, fræðst um efni sem tengist Jákvæðum aga, rætt saman og skipst á þekkingu og reynslu. Fyrsti fundurinn verður miðvikudaginn 6. október kl. 16:30. Þar byrjum við á að fá innlegg frá Arnrúnu Magnúsdóttur þar sem hún segir frá vinnu með lausnahringinn í leikskólum. Að því búnu skiptum við okkur í umræðuhópa þar sem við getum skipst á skoðunum og reynslusögum. Slóðin á fundinn er https://zoom.us/j/95581028442
Viðburðir á næstunni
Jákvæður agi í skólastofunni - 6.-7. ágúst 2026
Jákvæður agi í leikskólanum - 15.-16. okt 2026
___________________________________
Opið er fyrir skráningu á námskeiðið Jákvæður agi í skólastofunni sem haldið verður í Reykjavík dagana 6.-7. ágúst. Nánari upplýsingar og skráning hér: jakvaeduragi.is/namskeid-i-reykjavik/ ... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Nú er búið að opna fyrir skráningu á seinna réttindanámskeið árins, Jákvæður agi fyrir kennara ungra barna.
Námskeiðið verður haldið dagana 15. og 16. október 2026 á Akureyri og fer skráning fram á vefsíðu Samtaka um Jákvæðan aga jakvaeduragi.is/namskeid-a-akureyri-ja-i-leikskolanum/
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Dagana 19. og 20. janúar var haldið réttindanámskeið fyrir kennara ungra barna í Reykjavík.
Þátttakendur voru 13 og komu frá Furugrund í Kópavogi, Leikskólanum Laugalandi og Laugalandsskóla nálægt Hellu, Ásgarði á Hvammstanga, Geislabaug í Reykjavík, Holti í Reykjanesbæ og Krikaskóla í Mosfellsbæ.
Leiðbeinandi var Jónína Hauksdóttir.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook