Haldið verður tveggja daga námskeið í Jákvæðum aga (Positive Discipline in the Classroom) dagana 23.-24. apríl 2026.  Námskeiðið verður haldið á Hótel Laugarbakka í Miðfirði, Húnaþingi vestra. Leiðbeinendur eru Aníta Jónsdóttir og Ágúst Jakobsson sem bæði hafa hlotið viðurkenningu sem „Positive Discipline Trainer“.

Þarna er um að ræða nokkuð stíft tveggja daga námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og öryggi í notkun Jákvæðs aga í sínum störfum. Námskeiðið er viðurkennt af Positive Discipline Association í Bandaríkjunum og munu þátttakendur fá viðurkenningu að því loknu.  Rétt er að taka fram að þar sem þetta er svokallað „grunnnámskeið“ (Core workshop) gætu þeir sem hafa áður setið námskeið eða fengið fræðslu í Jákvæðum aga upplifað einhverjar endurtekningar á þessu námskeiði, en á hinn bóginn er alltaf gagnlegt að fara aftur í gegnum grunnæfingar og taka þátt í umræðum um grunnþætti í stefnunni, auk þess sem námskeiðið er formlega viðurkennt og gefur því tækifæri til framhaldsnáms fyrir þá sem vilja. Sjá nánar um tveggja daga námskeið hér

Námskeiðsgjald er 65.000 kr. En gisting og fæði í tvo daga kostar sem hér segir:
1 í herbergi: 62.300 – samtals með námskeiðsgjaldi kr. 127.300
2 í herbergi: 49.300 – samtals með námskeiðsgjaldi kr. 114.300
3 í herbergi: 45.634 – samtals með námskeiðsgjaldi kr. 110.634
(Innifalið í námskeiðsgjaldi eru námskeiðsgögn, þ.m.t. tvær bækur, gjald til Positive Discipline Association og viðurkenning frá samtökunum)
(„Gisting og fæði“ inniheldur gistingu frá miðvikudagskvöldi til föstudags, morgunverði, hádegisverði, miðdegishressingar og kvöldverð á fimmtudagskvöldinu.)

Kostnaðurinn er styrkhæfur frá Vonarsjóði vegna grunnskólans og Vísindasjóði vegna leikskólans.   

Skráning fer fram hér:

https://forms.gle/8aCz1VA3NDzdxpRc9

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á agust.jakobsson@gmail.com