Nú eru komin þrjú námskeið á dagskrá á vorönn 2026 en þau eru eftirfarandi:
Jákvæður agi fyrir kennara ungra barna – haldið í Reykjavík 19.-20. janúar. Þetta námskeið er sniðið fyrir kennara og starfsfólk í leikskólum. Enn eru næg laus pláss á þetta námskeið en vert að vekja athygli á því að þetta er eina námskeiðið sem fyrirhugað er að halda á höfuðborgarsvæðinu árið 2026 fyrir kennara ungra barna. Nánari upplýsingar og skráning: https://jakvaeduragi.is/namskeid-i-reykjavik-ja-i-leikskolanum/
Foreldrafræðslunámskeið – haldið í Reykjavík og með fjarfundum í febrúar. Þetta er námskeið þar sem farið er í grunnþætti og grunnæfingar sem tilheyra stefnunni með það að markmiði að þátttakendur öðlist aukinn skilning á henni og verði að námskeiði loknu tilbúnir til að halda kynningar og/eða lengri námskeið fyrir foreldra.
Nánari upplýsingar og skráning: https://jakvaeduragi.is/foreldrafraedslunamskeid/
Jákvæður agi í skólastofunni – haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 23.-24. apríl. Þetta námskeið er sniðið fyrir kennara og starfsfólk í grunnskólum. Nánari upplýsingar og skráning: https://jakvaeduragi.is/jakvaedur-agi-i-skolastofunni-namskeid-a-laugarbakka/
